Innlent

Ekkert ákveðið um framboð

Magnús Stefánsson
Magnús Stefánsson

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra gerist fámáll, inntur eftir eigin vangaveltum um framboð til embætta innan Framsóknarflokksins.

„Ég hef ekkert ákveðið en útiloka ekki neitt. Ég hef svo sem ekkert hugleitt þetta sérstaklega. Það eru ýmsir sem vilja fá eitthvað að gera þarna og það er bara ágætt,“ sagði Magnús í gær.

Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sækist enn einn eftir formannsætinu. Ráðherrarnir Jónína Bjartmarz og Guðni Ágústsson keppa um varaformannsembættið. Haukur Logi Karlsson ungliði vill verða ritari flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×