Innlent

Yfir 400 aldraðir í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými

Bætt úr brýnni þörf Meðal þess sem gert verður til að mæta kröfum nútímans í búsetumálum aldraðra er að breyta fjölbýli í einbýli. Á myndinni er heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík.
Bætt úr brýnni þörf Meðal þess sem gert verður til að mæta kröfum nútímans í búsetumálum aldraðra er að breyta fjölbýli í einbýli. Á myndinni er heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík. MYND/Vilhelm

Kveðið er á um aukin framlög til byggingar og reksturs hjúkrunarheimila fyrir aldraða í samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara frá því á miðvikudag. Þau 2.500 hjúkrunarrými sem nú eru á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum svara hvergi nærri þörfinni, enda yfir fjögur hundruð manns í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými.

Viðbótarframlögin nema alls 3.340 milljónum króna og renna peningarnir ýmist til framkvæmda eða reksturs.

Fram til ársins 2010 renna samtals 1.600 milljónir til framkvæmda, bæði nýbygginga og breytinga. Af þeim peningum fara 1.300 milljónir í að greiða kostnaðarhlutdeild ríkisins við byggingu 130 rýma og þrjú hundruð milljónir renna til breytinga eldri rýma úr fjölbýli í einbýli. Framlögin nema átta hundruð milljónum króna árið 2008, sjö hundruð milljónum 2009 og hundrað milljónum árið 2010.

Þá verður fé, sem fer úr Framkvæmdasjóði aldraðra til reksturs stofnanaþjónustu, fært til uppbyggingar öldrunarþjónustu. Með því eykst fjármagn til upp­byggingar um tvö hundruð milljónir á ári. Sú ráðstöfun fjár­magnar hlut ríkisins af byggingar­kostnaði 60-65 rýma á næstu fjórum árum.

Kostnaði vegna fjölgunar hjúkrunarrýma og dagvista verður mætt með sérstöku rekstrarframlagi sem alls hljóðar upp á 1.740 milljónir króna. Samsvarar það kostnaði við rekstur um tvö hundruð rýma til viðbótar því sem nú er gert ráð fyrir í langtímaáætlun.

Hjúkrunarheimilum verður gert að veita sjúkrahúsum meiri forgang við innlagnir en líkt og ítrekað hefur komið fram í fréttum liggja margir aldraðir á Landspítalanum þrátt fyrir að þurfa ekki lækningu heldur aðhlynningu á hjúkrunarheimili. Aðgerðirnar koma því spítalanum mjög til góða.

Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og eldri borgara segir að með þessum og öðrum aðgerðum sé áætlað að ná megi biðlistum í „ásættanlegt horf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×