Innlent

Hætt við sameiningu deilda

Kvennadeild
Hætt hefur verið við tímabundna sameiningu meðgöngu- og sængurkvennadeilda.
Kvennadeild Hætt hefur verið við tímabundna sameiningu meðgöngu- og sængurkvennadeilda. MYND/Vilhelm

Hætt hefur verið við fyrirhugaða sameiningu meðgöngu- og sængurkvennadeildar Landspítalans frá 21. júlí til 24. ágúst. Sameining deildanna var reynd í byrjun júní en starfsemi þeirra var aftur skilin að tveimur dögum síðar sökum álags á starfsfólk.

Margrét I. Hallgrímsson, sviðstjóri hjúkrunar á kvennadeild, segir að allir hafi lagst á eitt um að halda starfsemi deildanna tveggja með eðlilegum hætti. Það lögðust allir á eitt um að taka aukavaktir og þannig verða deildirnar reknar á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×