Innlent

Gefur kost á sér í 2.-3. sæti

Önundur Björnsson
Önundur Björnsson

Önundur Björnsson, prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð, sækist eftir 2.-3. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Önundur skipaði sjötta sæti á lista flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum og hefur verið varaþingmaður hans á kjörtímabilinu.

Önundur hefur unnið sem prestur, blaðamaður, kennari og sjómaður um ævina.

Hann hefur þjónað á þremur stöðum á Suðurlandi; á Breiðabólstað, í Höfn í Hornafirði og Garði á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×