Viðskipti innlent

Heimsferðir færa út kvíarnar

Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri Heimsferða
Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri Heimsferða

Heimsferðir hafa fest kaup á finnsku ferðaskrifstofunni Matka Vekka Group. Kaupverð var ekki uppgefið. Matka Vekka Group er stærsta ferðaskrifstofa Finnlands; hjá fyrirtækinu starfa tæplega þrjú hundruð manns og er áætluð velta á þessu ári rúmir tólf milljarðar króna.

Heimsferðir er nú í hópi stærstu ferðaskrifstofa á Norðurlöndum; með útibú í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á Íslandi. Árið 2005 keyptu Heimsferðir þrjár norrænar ferðaskrifstofur, Solresor í Svíþjóð, Solia í Noregi og Bravo Tours í Danmörku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×