Innlent

Fauk út af og velti bílnum

Bíll valt á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu um tvöleytið í fyrradag þegar hjólhýsi sem hann dró tókst á loft í miklu hvassviðri og splundraðist.

Hjólhýsið feykti bílnum af veginum í vindhviðu, en lögregla segir að vindhraði hafi mælst um 25 metrar á sekúndu á tímabili. Þrennt var í bílnum og hlaut fólkið minniháttar meiðsli. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Húsavík og var hann útskrifaður þaðan í gær.

Leifar hjólhýssins dreifðust á stórt svæði og er bíllinn þar að auki talin ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×