Innlent

Yfir hundrað fíkniefnamál

LÖGREGLUHUNDURINN NERO Fíkniefnaleitarhundar stóðu vaktina ásamt lögreglu um helgina.
LÖGREGLUHUNDURINN NERO Fíkniefnaleitarhundar stóðu vaktina ásamt lögreglu um helgina. MYND/Hrönn

Um 111 fíkniefnamál komu upp á landinu um helgina. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, má búast við að talan hækki næstu daga, þar sem um bráðabirgðatölur er að ræða.

Fleiri mál eru að koma inn á borð lögreglunnar, sum mál eru enn í vinnslu og koma seinna inn, en þetta er mesti fjöldi fíkniefnamála sem komið hefur upp síðustu ár um þessa helgi, segir Guðmundur. Hann telur ástæðu fjölgunarinnar vera strangt eftirlit nú um helgina.

Öflugt fíkniefnaeftirlit var um helgina á vegum Ríkislögreglustjóra. Sveit þrettán sérþjálfaðra fíkniefnalögreglumanna af höfuðborgarsvæðinu og tollvarða frá Tollstjóranum í Reykjavík og Sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli, með fjóra leitarhunda, heimsótti helstu útiviðburði helgarinnar og var lögregluembættunum á stöðunum innan handar.

Flest fíkniefnamálin komu upp í umdæmi Akureyrarlögreglunnar, um sextíu talsins. Að sögn Hermanns Karlssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri, var um svokölluð neyslumál að ræða í flestum tilvikum. Þrjú tilfellanna tengjast sölu og var lagt hald á töluvert magn fíkniefna í þeim tilvikum.

Næstflest fíkniefnamálin komu upp í Vestmannaeyjum en þau voru töluvert færri en á Akureyri, fjórtán talsins. Í tveimur tilvikum fundust fíkniefni innvortis þar sem viðkomandi reyndi að smygla fíkniefnum til eigin neyslu inn á Þjóðhátíðarsvæðið.

Guðmundur segir umfjöllun fjölmiðla um öflugt fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina hafa orðið til þess að fæla fólk frá því að reyna að koma með fíkniefni til að mynda á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×