Innlent

Kristján tekur við Mannlífi

Kristján Þorvaldsson
Kristján Þorvaldsson

Kristján Þorvaldsson verður næsti ritstjóri Mannlífs. Kristján var ritstjóri Séð og heyrt í tíu ár og hefur undanfarið gegnt starfi ritstjóra Vikunnar.

„Já, það er rétt. Ég mun líklega taka við ritstjórn Mannlífs núna um helgina," segir Kristján, sem var ritstjóri Mannlífs fyrir rúmlega tíu árum en segist ekki hyggja á miklar breytingar. „Það er ágætis mynd á Mannlífi núna. Það er þróað og þétt blað. Ég tek þetta verkefni að mér og það vonandi til frambúðar."

Elín Arnar, blaðamaður á Vikunni, mun taka við ritstjórn Vikunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×