Fossmo var alvaldur í söfnuðinum 5. september 2006 07:00 Lögregla kölluð til Barnfóstra fjölskyldunnar játaði á sig morðið fljótlega eftir að rannsókn lögreglu hófst en presturinn játaði ekki fyrr en í sjónvarpsviðtali í vikunni.
Sænski presturinn Helge Fossmo hefur viðurkennt að hafa skipulagt morð á eiginkonu sinni í bænum Knutby í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Fossmo viðurkenndi morðið í sjónvarpsviðtali í síðustu viku, að sögn vefútgáfu Expressen. Í ársbyrjun 2004 var lögreglu tilkynnt um skotárás á tvo menn í Knutby, þar á meðal eiginkonu Fossmos sem fannst látin í rúmi sínu. Barnfóstra fjölskyldunnar, Sara Svensson, játaði strax á sig morðið. Nokkrum vikum síðar var Helge Fossmo tekinn höndum. Um leið hófst rannsókn á andláti fyrri eiginkonu hans sem lést þegar hún datt í baði árið 1999. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að Fossmo hafði ægivald yfir barnfóstrunni, hafði skipulagt morðið á eiginkonu sinni og notað Svensson sem handbendi sitt. Þetta var þó aðeins hluti af heildarmyndinni því Fossmo var alvaldur í söfnuðinum í Knutby. Söfnuðurinn hafði einangrað sig frá umheiminum. Sumarið 2004 var Svensson dæmd til vistar á réttargeðdeild en Fossmo dæmdur í ævilangt fangelsi. Hann var dæmdur á grundvelli skipana í sms-skilaboðum til Svensson en hann hefur alltaf neitað hlutdeild í morðinu þar til nú.
Erlent Mest lesið Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Erlent Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Innlent Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Erlent The Vivienne er látin Erlent Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Innlent Mikið álag vegna inflúensu Innlent Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Innlent 1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Innlent Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Erlent Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan Innlent Fleiri fréttir Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Látin 116 ára að aldri Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Sjá meira