Meiri vandræði hjá Dell 13. september 2006 00:01 Michael Dell, stofnandi Dell Bandaríska fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við bókhald tölvuframleiðandans Dell síðastliðin fjögur ár. Markaðurinn/AP
Bandaríski tölvuframleiðandinn Dell hefur frestað útgáfu á afkomutölum fyrirtæksins fyrir annan fjórðung ársins. Ástæðan er athugasemdir sem bandaríska fjármálaeftirlitið (SEC) gerði við bókhald fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár. Að sögn Michaels Dell, stjórnarformanns og stofnanda Dell, vinnur fyrirtækið með fjármálaeftirlitinu og eru stjórnendur tilbúnir að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að svara öllum athugasemdum eftirlitsins fljótt og örugglega. Michael Dell sagðist ekki geta sagt fyrir um hvað rannsókn fjármálaeftirlitsins þýddi fyrir fyrirtækið en stefnt væri að því að kynna uppgjörið eins fljótt og auðið væri. Athugasemdir fjármálaeftirlitsins auka enn á vandræðasúpu tölvuframleiðandans en í síðasta mánuði þurfti fyrirtækið í varúðarskyni að innkalla fjórar milljónir rafhlaða frá Sony sem voru í fartölvum fyrirtækisins. Var það einhver mesta innköllun á tölvubúnaði fram til þessa. Gengi bréfa í Dell hefur ekki farið varhluta af vandræðunum en það féll um 3,7 prósent á markaði vestra í kjölfar fréttanna á mánudag og stendur nú í 20,85 dölum á hlut.
Viðskipti Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira