Innlent

Ef maður á ekki góða konu þá getur maður ekki staðið í svona

Halldór Blöndal Hefur setið á þingi síðan 1979.
Halldór Blöndal Hefur setið á þingi síðan 1979.

stjórnmál Halldór Blöndal gefur ekki kost á sér til endurkjörs á Alþingi í vor. Hann tilkynnti um þá ákvörðun sína á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Akureyrar í gærkvöldi en það var einmitt á Akureyri sem hann hóf þátttöku í stjórnmálum.

„Ég byrjaði hér og hef verið virkur þátttakandi í öllum alþingis­kosningum síðan 1963, fyrst sem blaðamaður og erindreki og svo sem frambjóðandi 1971 og þingmaður síðan 1979,“ sagði Halldór í samtali við Fréttablaðið í gær.

Hann segir tíma til kominn að draga sig í hlé og gefa öðrum tækifæri. „Ég verð 69 ára á næsta ári og mig langar að vera meira með konu minni og börnum á meðan heilsan er enn góð.“

Halldór var varaþingmaður frá 1971 til 1979 þegar hann hlaut fast þingsæti. Hann var landbúnaðar- og samgönguráðherra 1991-1995 og samgönguráðherra 1995-1999. Þá var hann forseti Alþingis 1999-2005. Halldór er nú formaður utanríkismálanefndar þingsins.

„Þetta hefur verið langur en mjög góður tími. Stjórnmál eru krefjandi og þó stundum blási á móti er starf stjórnmálamannsins mjög gott,“ segir Halldór. Hann kveðst hafa náð ýmsu fram á ferli sínum og nefnir í því samhengi jarðgöng til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og Háskólann á Akureyri.

Fjögur ár eru síðan Halldór ákvað að þetta kjörtímabil yrði hans síðasta. Hann ætlar að sitja til vors; segist enda alls ekki vera uppgefinn en meiri samvistir við fjölskylduna togi í hann. Halldór þakkar konu sinni, Kristrúnu Eymundsdóttur, fyrir ríkan stuðning í gegnum árin. „Ef maður á ekki góða konu þá getur maður ekki staðið í svona.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×