Innlent

Skaðabótamál tekið fyrir

Skaðabótamál Reykjavíkurborgar og Strætó bs gegn olíufélögunum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Olíufélögunum er gefið að sök að hafa haft verðsamráð í útboðum til borgarinnar og fyrirtækja hennar. Krafa borgarinnar nemur samtals rúmlega 150 milljónum auk dráttarvaxta. Málið var þingfest í apríl síðastliðnum og á næsta fyrirtaka að eiga sér stað hinn 9. október næstkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×