Innlent

Sækist eftir öðru sæti

Mynd/GVA

Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sækist eftir öðru sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún var kjörin á þing í síðustu kosningum en þá skipaði hún fjórða sætið á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu.

Katrín hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna og meðal annars setið í framkvæmdastjórn hennar. Þá var hún formaður ungliðahreyfingar flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×