Innlent

Samningur um varnir kynntur

Þjóðmenningarhúsið Varnarsamningurinn verður kynntur utanríkismálanefnd á þriðjudag.
Þjóðmenningarhúsið Varnarsamningurinn verður kynntur utanríkismálanefnd á þriðjudag.

Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna verður kynntur á fundi utanríkismálanefndar Alþingis á þriðjudag. Verður fundurinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu og hefst klukkan 14:30.

Áður en til hans kemur verður forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi kynntur samningurinn.

Liðlega hálft ár er liðið síðan bandarísk stjórnvöld tilkynntu um brottför varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Viðræður um varnir Íslands og viðskilnað varnarliðsins hófust 31. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×