Innlent

Engan sakaði í flugóhappi

Flugvél hvolfdi í lendingu á sandbreiðu við Gæsavötn um hádegi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var flugmaðurinn einn í vélinni, sem er eins hreyfils, þegar henni hlekktist á í lendingu og endaði á hvolfi um tvö hundruð metrum frá þeim stað þar sem hún lenti fyrst. Flugmaðurinn slapp lítið slasaður. Rannsóknarnefnd flugslysa fór á vettvang og rannsakar nú slysið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×