Innlent

Sækist eftir fjórða sæti

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir

Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður gefur kost á sér í fjórða sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Dögg er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur um tíu ára skeið rekið eigin lögmannsstofu og fasteignasölu. Einnig er hún aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Dögg hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn meðal annars sem varaformaður Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×