Innlent

Prófkjör hinn 11. nóvember

Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi í gær að prófkjör yrði haldið hinn 11. nóvember til að velja fulltrúa á framboðslista flokksins fyrir komandi þingkosningar.

Tólf hafa þegar lýst yfir framboði í prófkjörinu. Árni Mathiesen fjármálaráðherra gefur kost á sér í fyrsta sætið, Árni Johnsen í fyrsta til annað sæti, Drífa Hjartardóttir, Kjartan Ólafsson og Kristján Pálsson í annað sæti og Guðjón Hjörleifsson í annað til þriðja sæti. Þá eru sex aðrir sem sækjast eftir þriðja til fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×