Rafhlöður innkallaðar 4. október 2006 00:01 Fartölva Lenovo og IBM hafa ákveðið að kalla inn tilteknar rafhlöður framleiddar af Sony Corporation, þar sem þær geta í undantekningartilvikum ofhitnað.
Lenovo og IBM hafa ákveðið að innkalla tilteknar rafhlöður framleiddar af Sony Corporation sem seldar voru með ThinkPad-fartölvum á tímabilinu febrúar 2005 til september 2006. Þetta er gert þar sem einstaka rafhlöður geta í undantekningartilvikum ofhitnað. Þó er einungis vitað um eitt tilfelli þar sem rafhlaða í ThinkPad-fartölvu hefur bilað af rúmlega 500.000 sem eru í notkun. Verður þessum rafhlöðum skipt út viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Sony, framleiðandi rafhlaðnanna, hefur gert viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að sams konar vandamál geti framvegis komið upp í rafhlöðum frá fyrirtækinu. Nýherji hf., umboðsaðili ThinkPad á Íslandi, mun hjálpa viðskiptavinum að athuga hvort skipta þurfi út rafhlöðunni. Sömuleiðis mun Nýherji leiðbeina og aðstoða viðskiptavini við rafhlöðuskiptin í þeim tilfellum sem þeirra er þörf. Gengið hefur verið úr skugga um að engar fartölvur með umræddum rafhlöðum séu til sölu hjá fyrirtækinu í dag.
Viðskipti Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Engin hópuppsögn í júlí Viðskipti innlent Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira