Tónlist

Hlýlegur haustfagnaður

Óperukór hafnarfjarðar Fagnar haustinu með tónleikaröð.
Óperukór hafnarfjarðar Fagnar haustinu með tónleikaröð. MYND/GVA

Félagar í Óperukór Hafnarfjarðar kunna ráð við íslenskum kuldaköstum og hyggjast í kvöld flytja söngdagskrá í Hafnarborg sem bæði yljar og gleður. Um er að ræða stutta tónleikaröð sem hefur yfirskriftina „Haustfagnaður“ enda er það fagnaðarefni fyrir kórinn að koma saman á ný eftir sumarfrí.

Kórfélagar nú eru á áttunda tuginn og hefur fjölgað jafnt og þétt frá stofnun hans árið 2000. Stjórnandinn nú, sem fyrr, er Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona. Markmið kórsins hefur frá upphafi verið að sérhæfa sig í flutningi á Vínar-og óperutónlist en þess má geta að eitt af verkefnum starfsársins nú er tónverkið Cavalleria Rusticana eftir Mascagni sem kórinn mun flytja í samstarfið við Íslensku óperuna á næsta vor.

Í þessari tónleikaröð mun kórinn flytja blandaða dagskrá, íslenska sem erlenda. Jón Ásgeirsson skipar stóran sess í vali á íslensku efni en ýmsir óperukórarnir vega einnig þungt í dagskránni. Þá hefur kórinn á að skipa mjög hæfum einsöngvurum sem einnig koma við sögu. Meðleikari á tónleikum er hinn góðkunni píanóleikari Peter Máté.

Fyrstu tónleikarnir verða í Hafnarborg kl. 20 í kvöld en á laugardaginn heldur kórinn tvenna tónleika, aðra í Hveragerðiskirkju kl. 14 en hina síðari á Laugarlandi í Holti kl. 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×