Tónlist

MTV og Airwaves-hljómsveit í draugagöngu

Jónas Freydal
Lóðsaði MTV og We Are Scientists um Reykjavík í gær.
Jónas Freydal Lóðsaði MTV og We Are Scientists um Reykjavík í gær.

Tökulið frá MTV og meðlimir rokksveitarinnar We are Scientists reimuðu á sig gönguskóna í gærdag og héldu í tveggja tíma draugagöngu um Reykjavík með Jónasi Freydal, sem staðið hefur fyrir slíkum göngum í sumar.

We are Scientists er ein af fjölmörgum hljómsveitum sem troða upp á Airwaves en þegar MTV falaðist eftir viðtali við þá Scientists-kappa voru þeir þegar búnir að bóka sig í gönguna, en Jónas sagði þá hafa mikinn áhuga á að fræðast um íslenska drauga og álfa. Starfsliðið frá MTV ákvað því að fylgja þeim eftir, enda þótti þetta skemmtilegur vinkill á Íslandi í tengslum við Airwaves.

„Þetta verður bara ósköp venjuleg ganga,“ sagði Jónas þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær, en hann segir útsendara MTV ekki hafa farið fram á að gangan yrði lokuð öðrum.

„Þau höfðu mestan áhuga á gjörningnum okkar á bak við Alþingi. Þar fáum við skilaboð frá álfum og huldufólki í gegnum Íslands þúsund ár,“ sagði Jónas. „Litlir álfar og víkingar ætla að búa hér eftir þúsund ár líka,“ bætti hann við, en Jónas hefur mikinn áhuga á umhverfismálum og hefur staðfasta trú á því að ferðaþjónusta geti þjónað sama tilgangi og stórvirkjanaframkvæmdir hvað varðar fjárhag þjóðarbúsins.

„Draugagangan er dæmi um það, við fórum af stað í albjörtu veðri í byrjun júní og í dag hafa yfir átta þúsund manns mætt í göngurnar,“ sagði hann, en útlendir ferðamenn og innfæddir hafa að sögn hans jafnmikinn áhuga á göngunum.

Starfslið frá National Geographic var statt á landinu fyrir stuttu til að gera úttekt á virkjanamálum og fleiri erlendir fjölmiðlar hafa komið í göngurnar.

Innslagið sem MTV tók upp með We Are Scientists í gær verður sýnt á MTV í Evrópu, í alls 16 löndum. Auk þess munu útsendarar stöðvarinnar að sjálfsögðu taka upp heilmikið efni á tónleikum Airwaves.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.