Innlent

Gefur kost á sér í 6.-8. sætið

þórhildur 
þorleifsdóttir
þórhildur þorleifsdóttir

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í 6.-8. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Þórhildur hefur ekki gegnt störfum fyrir Samfylkinguna en var ein af stofnendum Kvennaframboðsins og var varaborgarfulltrúi fyrir Kvennaframboðið á tímabilinu 1982-1990. Þá hefur Þórhildur einnig setið í borgarstjórn.

Þórhildur var leikhússjóri Borgarleikhússins árin 1996-2000. Síðan þá hefur hún unnið ýmis störf og nú síðast leikstýrði hún fyrir Hafnarfjarðarleikhúsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×