Innlent

Tekinn tvívegis með fíkniefni

Karlmaður á miðjum aldri var tekinn tvívegis fyrir að hafa ætluð fíkniefni í fórum sínum. Lögreglan í Reykjavík hafði fyrst afskipti af manninum í miðborginni í fyrrakvöld og svo aftur um nóttina. Hann var þá enn staddur á svipuðum slóðum en aðeins liðu fáeinir klukkutímar á milli þess sem lögreglan stöðvaði för hans. Eftir seinna tilvikið var maðurinn fluttur á lögreglustöð.

Að auki hafði lögreglan afskipti af fjórum öðrum karlmönnum en í fórum þeirra allra fundust ætluð fíkniefni og einnig á tveimur stöðum í borginni og voru þau haldlögð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×