Innlent

Heimahjúkrun aukin eystra

Kvöld- og helgarþjónusta sú sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir nú í heimahjúkrun verður aukin verulega eystra.

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að veita Heilbrigðisstofnun Suðurlands sex milljóna króna viðbótarfé til að efla kvöld- og helgarþjónustu í heimahjúkrun. Þessi nýja þjónusta verður veitt á þjónustusvæði heilsugæslustöðvanna á Selfossi, Þorlákshöfn og í Hveragerði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×