Innlent

Fimmtán í framboði

Frestur til að tilkynna um framboð í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar vorið 2007 rann út í gær.

Fimmtán hafa gefið kost á sér í prófkjörinu sem fer fram laugardaginn 11. nóvember næstkomandi. Þeir eru: Ágúst Ólafur Ágústsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Ellert B. Schram, Glúmur Baldvinsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristrún Heimisdóttir, Mörður Árnason, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Össur Skarphéðinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×