Viðskipti innlent

Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir

Robert Mundell. Hann er oft kallaður faðir evrunnar en fyrir kenningar sínar um hagkvæm myntsvæði hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999.
Robert Mundell. Hann er oft kallaður faðir evrunnar en fyrir kenningar sínar um hagkvæm myntsvæði hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999.
Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október.

Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. Hann setti einna fyrstur fram hugmyndina um sameiginlega mynt fyrir Evrópu. Reyndar hefur hann verið þeirrar skoðunar að heimurinn ætti að sameinast um sömu mynt. Fyrir þessar hugmyndir sínar hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Hann hefur verið prófessor við Columbia-háskóla í New York í rúm þrjátíu ár.

Hinn prófessorinn, Assar Lindbeck, er fæddur í Svíþjóð og var formaður Nóbelsverðlauna­nefndarinnar í hagfræði um langt skeið. Lindbeck hefur verið fremstur í flokki þeirra hagfræðinga sem hafa varað Svía við efnahagslegum afleiðingum velferðar­stefnu þeirra, sem hann telur ekki nógu hagkvæma.

Friðrik Már Baldursson, prófessor og forseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, kveðst að vonum ánægður með komu þessara manna. Þeir hafi báðir átt góð samskipti við deildina hér á landi og því þyki honum mikill heiður að fá þá hingað til lands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×