Sport

Andre Miller rausnarlegur við háskólann sinn

Andre Miller er ekki búinn að gleyma háskólanum sínum og gaf í gær 38 milljónir króna til skólans
Andre Miller er ekki búinn að gleyma háskólanum sínum og gaf í gær 38 milljónir króna til skólans NordicPhotos/GettyImages

Bakvörðurinn Andre Miller hjá Denver Nuggets er ekki búinn að gleyma því hvað háskólaganga hans í Utah reyndist honum vel á sínum tíma og í gær gaf Miller hvorki meira né minna en 500.000 dollara eða 38 milljónir króna til gamla skólans síns. Peningana á meðal annars að nota til að byggja upp íþróttaaðstöðuna við skólann.

Miller er ekki búinn að gleyma því hvað þjálfarar hans og kennarar hjálpuðu honum mikið á sínum tíma, en hann átti í miklum erfiðleikum í námi á sínum tíma. Hann náði þó að rífa sig upp í lestrinum og útskrifaðist með sóma. Ekki var Miller síðri á körfuboltavellinum þar sem hann leiddi lið Utah alla leið í úrslitaleikinn í háskólaboltanum. Hann hefur verið atvinnumaður í NBA síðan árið 1999.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×