Tónlist

Ný lög og sálmar

Sesselja Kristjánsdóttir messósópran syngur einsöng með Dómkórnum í kvöld.
Sesselja Kristjánsdóttir messósópran syngur einsöng með Dómkórnum í kvöld. MYND/Valli

Tónlistardagar Dómkirkjunnar í Reykjavík eru árleg tónlistarveisla sem haldin er í kringum vígsluafmæli kirkjunnar síðustu helgina í október og fram í miðjan nóvember. Tónlistardagarnir eru nú haldnir í 25. skipti en í ár eru liðin 210 ár frá því að Dómkirkjan var vígð.

Í kvöld verða all sérstakir tónleikar í kirkjunni. Dómkórinn leitaði til þeirra tónskálda sem árum saman hafa samið verk fyrir kórinn og búsett eru hér á landi, en kórinn hefur ekki síður leitað til erlendra tónskálda. Erindið var þetta árið að fá til flutnings sálma eða stutt kórlög. Mörg falleg lög bárust og verða þau flutt í kvöld á tónleikum í Dómkirkjunni og hefjast tónleikarnir kl. 20.

Tónskáldin sem eiga ný verk á þessum tónleikum eru: Þorkell Sigurbjörnsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, Jónas Tómasson, Jón Ásgeirsson, Mist Þorkelsdóttir, Tryggvi M. Baldursson og Jórunn Viðar. Auk þess verða flutt eldri verk eftir Jón Nordal, Jón Þórarinsson, Harald Sveinbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Auk Dómkórsins eru flytjendur stjórnandi kórsins, Marteinn H. Friðriksson, sem leikur á orgel, og Sesselja Kristjánsdóttir messósópran.

Á morgun kl. 17 verða síðan tónleikar á kirkjulofti Dómkirkjunnar en þetta mun vera í fyrsta skipti sem opinberir tónleikar fara fram þar. Yfirskrift þeirra er „Okkur til gleði og guði til dýrðar“. Sungin verða gömul íslensk lög og leikið á langspil






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.