Innlent

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi

Eldur kom upp í íbúð fjölbýlishúss á Akureyri í gærmorgun. Íbúi hafði gleymt potti á eldavél og vaknað við væl reykskynjara. Hann komst út af sjálfsdáðum. Lögregla og slökkvilið ræstu íbúðina sem var þá orðin full af reyk. Eitthver tjón hlaust af vegna reyksins en betur fór en á horfðist.

Björgunarsveitir aðstoðuðu bæði lögreglu og almenning í tugum atvika sem tengdust hvassviðrinu sem gekk um mestallt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×