Innlent

Ekki fremst í forgangsröð

Stofnun framhaldsskóla í Rangárvallasýslu er ekki fremst í forgangsröð nýrra framhaldsskóla í landinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra greindi frá því á Alþingi í vikunni.

Björgvin G. Sigurðsson Samfylkingunni spurði ráðherra hvort til stæði að stofna framhaldsskóla í sýslunni og fékk þau svör að svo væri ekki. Stafaði það bæði af góðum samgöngum í Rangárvallasýslu og fámennum árgöngum á svæðinu.

Björgvin var ekki ánægður með svörin og hvatti til að málið yrði skoðað betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×