Erlent

Þurfa að þrífa svínastíurnar

Yfirvöld í menntaskólanum Ion Mincu í Vaslui í Rúmeníu hafa gripið til þess ráðs að láta nemendur sem skrópa í tíma þrífa svínastíur.

Er þetta gert af illri nauðsyn þar sem „engar aðrar aðgerðir virkuðu“, eins og skólastjórinn, Dan Magureanu, lét hafa eftir sér þegar aðgerðirnar voru kynntar. „Með þessu móti teljum við okkur geta gefið þeim sem ekki standa sig í skólanum skýr skilaboð um það hvernig framtíð blasir við þeim sem ekki mæta í skólann og gera skyldu sína.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×