Tónlist

Salzburgarárin hans Mozarts

Mozart Æskuverk hans verða í fyrirrúmi á tónleikum kvöldsins.
Mozart Æskuverk hans verða í fyrirrúmi á tónleikum kvöldsins.

Í kvöld verða tónleikar hjá Sinfóníunni sem helgaðir eru verkum Mozarts sem hann samdi í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg. Verður Hamrahlíðarkórinn í stóru hlutverki á tónleikunum. Á efnisskránni er verkið Exultate jubilate, eitt frægasta æskuverk Mozarts, auk tveggja verka sem Mozart samdi við Maríutextann Regina Coeli.

Hafa ber í huga að Mozart var 15 ára þegar hann samdi fyrra verkið en 16 ára þegar hann samdi það seinna. „Hvað tónlistina varðar kemur fátt á óvart í þessari hrífandi tónsmíð nema það að tæplega 17 ára drengur skuli geta samið af svo mikilli yfirburða kunnáttu, og að því er virðist nær fyrirhafnarlaust," segir Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur um efnisskrána.

Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Robert King og kanadíska söngkonan Gillian Keith syngur einsöng. Þorgerður Ingólfsdóttir og Hamrahlíðarkórarnir hafa fyrir löngu sungið sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar og samstarf þeirra við Sinfóníuhljómsveitina er langt og gæfuríkt. Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30 og er fátt miða eftir á þennan viðburð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.