Skoðun

Áhugi fyrir framboði

Á almennum fundi Félags eldri borgara í Reykjavík (FEB), sem haldinn var 17. nóvember sl., kom fram mikil óánægja eldri borgara með kjör aldraðra. Skýrt var frá því á fundinum, að ríkisstjórnin hefði ákveðið, að frítekjumark vegna atvinnutekna skyldi vera 25 þúsund krónur á mánuði.

Félagsmönnum þótti þetta svo nánasarlegt hjá ríkisstjórninni, að meirihluti fundarmanna vildi skila þessu aftur til ríkisstjórnarinnar! Fram kom á fundinum mikill áhugi á því að eldri borgarar byðu fram í væntanlegum alþingiskosningum.

Af hálfu kjaranefndar FEB var gerð grein fyrir tillögum kjaranefndar um kjaramál. Fram kom, að kjaranefnd hefði samþykkt, að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum skyldi miðast við könnun Hagstofunnar um neysluútgjöld og leiðréttast í samræmi við hana í tveimur áföngum. Skyldi lífeyrir einhleypinga, sem ekki væru í lífeyrissjóði, hækka í 160 þúsund á mánuði um næstu áramót og leiðréttur að fullu 1.janúar 2008, þ.e. fara í 201 þúsund á mánuði. Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar eru útgjöld einhleypinga nú 201 þúsund á mánuði, með vísitöluhækkun. Það er fyrir utan skatta. Tillaga þessi hefði verið lögð fyrir framkvæmdastjórn Landssambands eldri borgara en LEB hefði ekki viljað fara hærra en í 133 þúsund á mánuði frá næstu áramótum. Tillaga stjórnarandstöðunnar er hin sama, þ.e. að lífeyrir aldraðra hækki í 133 þúsund á mánuði hjá einhleypingum.

Tillögur Landssambands eldri borgara og stjórnarandstöðunnar eru óviðunandi. Samkvæmt þeim vantar 68 þúsund á mánuði upp á, að þær nægi fyrir neysluútgjöldum einhleypinga samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands. Tillaga ríkisstjórnarinnar kveður á um, að lífeyrir aldraðra hækki í 126 þúsund um næstu áramót, þ.e. hækki um 3 þúsund krónur. Þetta er hlægilega lítil hækkun. Það er til skammar, að ríkisstjórnin skuli skammta öldruðum slíka hundurlús á sama tíma og stjórnarflokkarnir státa af því, að Ísland sé ein ríkasta þjóð í heimi.

Höfundur er hagfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×