Tónlist

Útgáfu fagnað á Domo

Jóel Pálsson saxófónleikari Fetar ávallt nýjar slóðir í tónsmíðum sínum.
Jóel Pálsson saxófónleikari Fetar ávallt nýjar slóðir í tónsmíðum sínum. mynd/eddi

Saxófónleikarinn Jóel Pálsson heldur útgáfutónleika á Domo- bar í kvöld ásamt hljómsveit og fagnar þar útgáfu disksins Varps. Eru tónleikanir hluti af tónleikaröð jazzklúbbsins Múlans sem nú hefur hreiðrað um sig á þessum öndvegis tónleikastað.

Á plötunni Varp má merkja sterk áhrif rokktónlistar í bland við djass, rafpopp, kirkjumúsík og frjálsan spuna. Jóel fæst við alls konar tónlist en hann kveðst ávallt reyna að feta nýjar slóðir í tónsmíðum sínum. Einvalalið tónlistarmanna veitir Jóel liðsinni sitt á plötunni og á tónleikunum en þar innanborðs eru Hilmar Jensson, raf- og kassagítarleikari, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, Matthías Hemstock leikur á trommur, slagverk og svokallaðan trommuheila og Davíð Þór Jónsson á hammond-orgel og píanó.

Jóel Pálsson hlaut á dögunum tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna – fyrir plötu ársins og lag ársins í flokki djasstónlistar.

Tónleikarnir hefjast kl. 21.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×