Tónlist

JóJó gleymir ekki gleymda fólkinu

Segir Bubba sjá um Hraunið en þeir Soul Brothers ætla að telja í nokkur blúsuð jólalög að Sogni.
Segir Bubba sjá um Hraunið en þeir Soul Brothers ætla að telja í nokkur blúsuð jólalög að Sogni.

„Þetta er gleymda fólkið í þjóðfélaginu,“ segir götuspilarinn JóJó. Hann er að búa sig undir för á réttargeðdeildina á Sogni ásamt trymblinum Papa Jazz – Guðmundi Steingrímssyni – og með þeim í för verður bassaleikari úr Sinfóníunni sem heitir Dean Farell.

„Já, við ætlum að spila þarna hinn nítjánda. Ætlum að renna í nokkur blúsuð jólalög og kjafta við fólkið. Við Papa köllum okkur alltaf Soul Brothers þegar við komum saman og gott að fá Dean í hópinn. Skömm að ekki skuli fleiri artistar fara að Sogni til að spila. Það mættu fleiri fara þangað og skemmta fólkinu. Bubbi sér um Hraunið en það má ekki gleyma þessum dal,“ segir JóJó.

Í sumar fóru þeir Soul Brothers á Sogn til að spila fyrir vistmenn. JóJó segir það eftirminnilega reynslu og hafa komið sér á óvart hversu hlýtt og gott fólkið þar er. Hann segir ekki hægt að líta á vistmenn sem glæpamenn þótt sumir hafi framið hræðilega glæpi í geðsýki sinni. „Maður lítur ekki þannig á. Þetta eru manneskjur sem hafa lent inni á blindgötu eins og svo margir aðrir.“ JóJó ætlar að koma færandi hendi og gefa Sogns-fólki að gjöf nýjan disk sem hann var að setja saman – Jólagötuflippdisk sem JóJó kallar svo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.