Innlent

Fimmtán í framboði

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri er eini frambjóðandinn sem gefur formlega kost á sér í fyrsta sæti.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri er eini frambjóðandinn sem gefur formlega kost á sér í fyrsta sæti. MYND/E.Ól.

Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en kjörstaðir opnuðu klukkan níu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sætið en fjögur keppa um annað sætið á listanum.

Búist er við að fyrstu tölur liggi fyrir um klukkan sex síðdegis. Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga allir flokksbundnir Sjálfstæðismenn í Kópavogi sem náð hafa sextán ára aldri og stuðningsmenn flokksins í Kópavogi sem undirrita inntökubeiðni í Sjálfstæðisflokkinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×