Innlent

Sigurrós sækist eftir 4. sætinu

Sigurrós Þorgrímsdóttir
Sigurrós Þorgrímsdóttir

Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi í Kópavogi, gefur kost á sér í 4. sæti flokksins í Suðvesturkjördæmi.

Sigurrós lauk mastersgráðu í opinberri stefnumótun og stjórnsýslu frá HÍ árið 2000 en hefur verið viðriðin bæjarpólitíkina í Kópavogi síðan árið 1994. Hún leggur áherslu á mennta- og menningarmál, málefni aldraðra og æskulýðs, einnig ferðaþjónustu og heilbrigðismál.

Sigurrós er formaður aðalstjórnar Breiðabliks og umdæmisstjóri Inner Wheel á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×