Fótbolti

Juventus dæmt niður og svipt tveimur titlum

Ítalska stórliðið Juventus hefur verið dæmt niður í B-deildina þar í landi og verður svipt meistaratitlunum tveimur sem liðið vann í ár og í fyrra. Þá hafa lið Lazio og Fiorentina einnig verið dæmd niður um deild. Fjórða liðið sem lá undir grun í málinu, AC Milan, heldur sæti sínu í A-deildinni en dregin verða 15 stig af liðinu í byrjun tímabils.

Juventus mun þar að auki hefja leik í B-deildinni með 30 stig í mínus, sem þýðir að liðið fær ekki sín fyrstu stig í deildarkeppninni fyrr en eftir lágmark 10 sigurleiki. Tólf stig verða á sama hátt dregin af liði Fiorentina í B-deildinni á næsta tímabili og sjö stig dregin af Lazio. Þá voru stig dregin af AC Milan frá síðasta tímabili, sem þýðir að liðið mun ekki fá keppnisrétt í meistaradeild Evrópu á komandi tímabili.

Félögunum hefur verið gefin þriggja daga frestur til að áfrýja í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×