Innlent

Guðrún sækist eftir 4. -5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík

MYND/E.Ól

Guðrún Ögmundsdóttir þingkona sækist eftir fjórða til fimmta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fer fram 11. nóvember og er vegna komandi þingkosninga. Guðrún hefur setið á þingi frá árinu 1999 og skipaði í síðustu kosningum 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður.

Á Alþingi hefur hún setið í félagsmálanefnd, heilbrigðisnefnd og allsherjarnefnd. Guðrún sat enn fremur í borgarstjórn Reykjavíkur á árunum 1990-1998. Auk Guðrúnar hafa þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Helgi Hjörvar og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir lýst yfir framboði í fjórða sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×