Innlent

Síbrotakona fær fjóra mánuði

Kona á fertugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands í gær dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa í febrúar 2004 brotist inn í Skíðaskálann í Hveradölum, stolið þaðan peningum, matvælum og öðrum munum og ekið á brott undir miklum áhrifum slævandi lyfja og örvandi efna. Konan hefur frá árinu 1989 hlotið tíu refsidóma.

Með henni í för var karlmaður sem einnig var dæmdur fyrir innbrotið og þjófnaðinn. Sá var einnig undir áhrifum lyfja en hafði aldrei hlotið refsidóm. Hann var dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×