Innlent

Pólskur maður týndur í viku

Michal Piecychna
Michal Piecychna

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Michal Piecychna, Pólverja fæddum 1975, sem hefur verið saknað frá 20. júlí síðastliðnum, en þá sást til hans í Skeifunni í Reykjavík.

Michal er 173 sentimetrar á hæð, þéttvaxinn og með ljóst hár. Hann var klæddur í ljósar buxur, svartan eða grænan bol og sandala síðast þegar vitað var.

Þeir sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um ferðir eða dvalarstað Michals eftir 20. júlí eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×