Innlent

Bryndís Ísfold stefnir á 6. sætið í Reykjavík

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Bryndís situr nú í framkvæmdastjórn flokksins og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum hans. Hún var meðal annars formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar á síðasta kjörtímabili og situr nú í mannréttindanefnd. Þá var hún formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×