Innlent

Riðusmit greindist í kind á bæ í Flóa

MYND/Vilhelm

Riðusmit hefur verið staðfest í kind á bænum Syðri-Velli í Flóa. Frá þessu er greint á fréttavefnum Sudurland.is. Riðusmit hefur aldrei fyrr komið upp í Flóa eða á Skeiðum. Á milli fimmtíu og sextíu kindur eru á bænum og verða þær allar felldar auk þess sem sýni verða tekin úr sláturfé á Skeiðum og í Flóa.

 

Kindin sem greindist með riðu gekk síðastliðinn vetur úti ásamt þremur lömbum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×