Innlent

Enn leitað að 24 ára karlmanni

Eftirgrennslan lögreglunnar í Reykjavík eftir Hauki Frey Ágústssyni, sem er tuttugu og fjögurra ára, þrekvaxinn og einn og áttatíu á hæð, hefur engan árangur borið. Ekkert hefur til hans spurst í viku og í dag verður ákveðið hvort ástæða þyki til að hefja formlega leit að honum. Stúlkan, sem lögreglan í Kópavogi lýsti eftir fyrr í vikunni, fannst í heimahúsi í gær eftir að hafa farið huldu höfði í nokkra daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×