Fimmti sigur Denver í röð 27. nóvember 2006 13:31 Carmelo Anthony skoraði 33 stig fyrir Denver í nótt og er stigahæsti leikmaður deildarinnar NordicPhotos/GettyImages
Carmelo Anthony skoraði 33 stig þegar Denver lagði LA Clippers á heimavelli 103-88 í NBA deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigurleikur Denver í röð í deildinni og er Anthony stigahæsti leikmaður deildarinnar það sem af er með 31 stig að meðaltali. Corey Maggette var besti leikmaður Clippers í leiknum með 22 stig og 12 fráköst. Totonto lagði Indiana 92-83 þar sem Chris Bosh skoraði 17 stig og hirti 11 fráköst fyrir Toronto en þeir Danny Granger og Stephen Jackson skoruðu 18 hvor fyrir Indiana. Phoenix lagði Portland á útivelli 119-101 þar sem Raja Bell var stigahæstur gestanna með 20 stig, þar af 7 þrista, og Amare Stoudemire skoraði 20 stig og hirti 11 fráköst. Travis Outlaw skoraði 22 stig fyrir Portland. San Antonio lagði Seattle á útivelli 98-78 þar sem Tony Parker skoraði 20 stig fyrir San Antonio og Tim Duncan skoraði 18 stig og hirti 16 fráköst. Duncan varð í nótt þriðji leikmaðurinn í sögu San Antonio til að skora 15.000 stig fyrir félagið ásamt þeim George Gervin og David Robinson. Ray Allen setti 21 stig fyrir Seattle. Argentínumaðurinn Manu Ginobili á við bakmeiðsli að stríða og spilaði ekki með liðinu í nótt. Þetta var sjöundi sigur San Antonio í röð á útivelli á tímabilinu og athygli vekur hversu vel Argentínumaðurinn Fabricio Oberto hefur spilað á útivöllum en hann er með tæplega 80% skotnýtingu á útivöllum það sem af er tímabili. Loks vann lið LA Lakers sigur á New Jersey 99-93 þar sem Lamar Odom skoraði 21 stig og Kobe Bryant skoraði 19 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Lakers en Vince Carter skoraði 21 stig og hirti 11 fráköst og Jason Kidd skoraði 7 stig, gaf 16 stoðsendingar og hirti 8 fráköst fyrir New Jersey
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Enski boltinn Myndasyrpa: Glódís og forsetinn í hláturskasti á hófinu í Hörpu Sport Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Handbolti Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 83-79 | Nokkuð óvæntur sigur heimamanna Körfubolti Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni Fótbolti „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Enski boltinn Amorim segir leikmenn sína hrædda Enski boltinn Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Handbolti Aðallega þeir tveir sem við erum að spenntir að fá inn í þetta Körfubolti Fleiri fréttir Leik lokið: Keflavík - Valur 77-65 | Anna Ingunn reyndist Keflavík dýrmæt á ögurstundu Aðallega þeir tveir sem við erum að spenntir að fá inn í þetta Uppgjörið: Valur - Stjarnan 83-79 | Nokkuð óvæntur sigur heimamanna Martin glímir við meiðsli í hásin Allt er fertugum LeBron fært „Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Tindastóll upp fyrir Njarðvík Haukar og Hamar/Þór með góða sigra Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 64-84 | Þór hafði betur í Smáranum Í bann fyrir skaðlega framkomu og dyrnar opnar „Hann er með vonir og væntingar heils bæjarfélags á bakinu“ „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Uppgjörið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Uppgjörið: Höttur - Haukar 86-89 | Gestirnir unnu botnslaginn á Egilsstöðum Butler vill í burtu: Tilbúinn að spila með öllum liðum nema Miami Heat Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Fótbrotnaði í NBA leik Var aðdáandi Chiefs áður en Mahomes og Travis mættu til sögunnar „Stoltur af strákunum sem eru að taka töluvert meiri ábyrgð“ „Það er krísa“ Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 87-89 | Langþráður sigur Álftnesinga Tryggvi Snær tók flest fráköst í góðum sigri Uppgjörið og viðtöl: ÍR - Grindavík 98-90 | ÍR sigraði í framlengdri rússibanareið Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 106-104 | Heimasigur í hörkuleik Íslenska körfuboltaárið hefur aldrei byrjað fyrr Friðrik Ingi orðinn þjálfari Hauka Sakar NBA-deildina um að vera á móti Houston Rockets Lauk árinu með fjörutíu stiga leik Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar Sjá meira