Innlent

Þjófur náðist á flótta

Mynd/Úr safni

Lögreglan í Reykjavík handtók ökumann, eftir snarpa en stutta eftirför undir morgun, sem grunaður er um aðild að nokkrum innbrotum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Andvirði þýfisins nemur mörg hundruð þúsundum króna.

Brotist var inn í tvær tölvuverslanir, í Kópavogi og í Reykjavík, þaðan sem þjófarnir stálu fartölvum og stórum flatskjá, og af tveimur heimilum í borginni höfðu þjófarnir á brott með sér svonefnda flakkara, diska og dýra myndavél. Tveir menn sem voru í bíl með hinum handtekna, komust undan á hlaupum og er þeirra nú leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×