Lífið

Ísland síðast á svið

Helena Paparizou sigraði keppnina í fyrra með laginu My Number One.
Helena Paparizou sigraði keppnina í fyrra með laginu My Number One.
Eins og greint var frá í gær stígur Silvía Nótt síðust á svið í undankeppni Eurovision sem fram 18.maí í Grikklandi.

Verði hún meðal tíu efstu kemst sjónvarpsdívan áfram í aðalkeppnina laugardaginn 20.maí.

Samkvæmt kenningum Eurovision sérfræðinga kemur það Íslandi til góða að vera aftarlega í röðinni en gæti líka orðið okkar versti óvinur. Allra síst þykir að vera fremstur í röðinni því áhorfendur eru oft að koma sér fyrir á meðan fyrstu lögin renna í gegn.

Það telsts kostur að vera um miðbik keppninnar enda sitja margir þá sem fastast en einhverjir hljóta að vera orðnir þreyttir þegar 22 misgóð dægurlög hafa hljómað í eyrunum og þess vegna gæti það reynst okkur dýrkeypt að syngja síðust en á móti kemur að flestir vilja eflaust sjá fyrsta og síðasta lagið.

Fjölmörg austantjaldslönd taka þátt í keppninni en ófáir hafa haldið því fram að með tilkomu þeirra sé nánast ógjörningu að komast uppúr undanriðlinum.

Armenia, Búlgaría, Slóvenía, Makedónía, Pólland, Rússland, Litháen, Eistland og Bosnía og Hersegóvína eru öll lönd sem koma frá þessu svæði en sleggjuómar eru þó aldrei líklegir til vinsælda.

Armenía hefur leikinn en það er Andre sem stígur fyrstur á sviði. Á undan okkur er Bosnía og Hersegóvína en það er hjartaknúsarinn Hari Mata Hari sem syngur um Nightingale frá Sarajevo.

Ein breyting verður í útsendingu RÚV frá því í fyrra en tilkynnt hefur verið að Sigmar Guðmundsson, Gettu Betur - spyrill, leysir Gísla Martein af hólmi en hann hefur lýst keppninni undanfarin ár með miklum tilþrifum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.