Lífið

Æfingar hafnar á Öskubusku

Söngvarar og aðstandendur sýningarinnar á einni af fyrstu æfingunum á Öskubusku.
Söngvarar og aðstandendur sýningarinnar á einni af fyrstu æfingunum á Öskubusku. MYND/Óperan

Æfingar eru hafnar á óperunni Öskubusku eftir Rossini sem er aðalverkefni Íslensku óperunnar á vormisseri 2006. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Öskubuska verður frumsýnd í Óperunni 5. febrúar 2006 og alls verða 10 sýningar.

Það er óhætt að segja að það sé vel valin hópur listamanna sem kemur að sýningunni. Með hlutverk Öskubusku fer Sesselja Kristjánsdóttir, en hún er ein af okkar fremstu mezzó-sópran söngkonum. Hlutverk prinsins, Ramiro, syngur Garðar Thór Cortes en hann hefur heldur betur slegið í gegn að undanförnu og var geisladiskur hans, Cortes, söluhæsti geisladiskurinn fyrir jólin. Einar Th. Guðmundsson syngur hlutverk Alidoro, en Einar hefur verið að gera það gott í Vínarborg undanfarin misseri. Þetta er í fyrsta skipti sem hann syngur á sviði Íslensku óperunnar. Davíð Ólafsson, syngur hlutverk stjúpföðurins, Don Magnifico, en Davíð er hefur haslað sér völl sem óperusöngvari og skemmtikraftur undanfarin ár.

Hlín Pétursdóttir syngur hlutverk stjúpsysturinnar Clorindu, en Hlín hefur að mestu leyti starfað í Þýskalandi síðustu ár en er nú flutt heim og syngur nú aftur í Óperunni eftir nokkura ára hlé. Anna Margrét Óskarsdóttir, er upprennandi sópran söngkona sem fer með hlutverk stjúpsysturinnar Tisbe.

Síðast en ekki síst er það hinn ástsæli söngvari Bergþór Pálsson sem syngur hlutverk Dandinis sem er þjónn prinsins. Hljómsveitarstjóri er tónlistarstjóri Óperunnar Kurt Kopecky. Kórinn í sýningunni er skipaður 12 glæsilegum karlmönnum og í hljómsveitinni eru tæplega 40 hljóðfæraleikarar.

Leikstjórinn, Paul Suter, er svissneskur og er það eiginkona hans, Season Chiu frá Hong Kong sem sér um hönnun sviðsmyndar og búninga. Ljósahönnuður er Jóhann Bjarni Pálmason.

Allar nánari upplýsingar um Öskubusku er að finna á Óperuvefnum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.