Viðskipti innlent

Stefnt að skráningu Teymis í Kauphöllina

Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.

Stofnfundur fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Teymis hf. var haldinn í morgun. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands.

Innan samstæðu félagsins verða eftirtalin fyrirtæki: Vodafone, Kögun, Skýrr, Securitas og EJS. Auk þess rekur Teymi fyrirtæki á borð við P/F Kall, Mömmu, BTnet og lággjaldasímafélagið SKO.

Í fjarskiptahluta Teymis verða fyrirtækin Vodafone á Íslandi, SKO, P/F Kall í Færeyjum og Mamma. Í öryggishlutanum verður Securitas og í upplýsingatæknihlutanum verða Kögun, Skýrr og EJS. Stjórn Teymis var kosin á stofnfundi félagsins í morgun. Í stjórn félagsins eru: Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður, Þorsteinn M. Jónsson, Guðmundur Ólason, Matthías Imsland og Þór Sigfússon.

Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis, segir í tilkynningu að fyrirtæki innan samstæðunnar búi yfir miklum vaxtartækifærum og því séu spennandi tímar framundan. Hann segir að markmiðið með stofnun Teymis sé að leiða vöxt og framþróun fyrirtækja í samstæðunni. „Við viljum að Teymi verði skýr valkostur fyrir fjárfesta. Við ætlum að hámarka rekstur hvers fyrirtækis fyrir sig. Við munum því leita leiða til að auka sérhæfingu fyrirtækjanna og finna nýja tekjumöguleika, m.a. í samstarfi þeirra á milli. Áhersla okkar er á aukna sjálfvirkni og aðhald í rekstri," segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×