Tónlist

Tóku upp Heroin

Tveir meðlimir Weezer hafa tekið upp lagið Heroin.
Tveir meðlimir Weezer hafa tekið upp lagið Heroin.

Tveir meðlimir Weezer hafa tekið upp lagið Heroin eftir The Velvet Underground fyrir kvikmyndina Factory Girl. Um er að ræða gítarleikarann Brian Bell og trommarann Patrick Wilson.

Heroin kom út árið 1967 á plötunni Velvet Underground & Nico og er eitt þekktasta lag The Velvet Underground.

„Að vinna að þessu verkefni með Pat var frábært. Það var ekkert ákveðið fyrirfram, engar æfingar og við ræddum varla saman um hvernig við ættum að nálgast þetta sjö mínútna langa lag,“ sagði Bell.

Leikkonan Sienna Miller fer með aðalhlutverkið í Factory Girl, sem fjallar um ævi Edie Sedgwick.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×