Innlent

Myrkvun Reykjavíkur vekur mikla athygli

MYND/Anton Brink

Borgarmyrkvinn síðastliðinn fimmtudag virðist hafa fengið mikla umfjöllun um allan heim eftir því sem segir í tilkynningu frá alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem stóð fyrir uppátækinu.

Frétt Reuters og annarra miðla þess efnis hefur ratað í dagblöð, vefmiðla, spjallþræði, bloggsíður og útvarpsþætti um víða veröld og meðal stórmiðla sem sagt hafa frá atburðinum eru BBC, Aftenposten og Washington Post. Þakka aðstandendur alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar fyrir sig og segja að ef menn líti á fimmtudagskvöldið sem generalprufu megi vera ljóst að þessi viðburður gæti orðið einhver sá þekktasti á ári hverju á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×